Tuesday, September 20, 2005

síðasta durham færsla

Á miðvikudaginn flyt ég til Edinborgar ásamt Nick og ýmsu hafurtaski. Við þurfum að mæta kl 15.00 á skrifstofu leigumiðlunarinnar til að skrifa undir þúsund blaðsíðna samning hér í þessu landi vantrausts og formlegheita og því leggjum við af stað héðan rétt um hádegið. Efa ekki að flestum þyki þetta spennandi upplýsingar:)

Ég hef mælt mér mót við elskulegan Rodney minn á morgun kl 16.00. Hann mun þá gefa mér smá ráð og vonandi hvatningu áður en ég held á braut. Reyndar tekur bara 90 mínútur að ferðast milli Edinborgar og Durham með lest en ég nenni samt ekki að vera að því oft. Ég á ekki mikið eftir að skrifa en það er bara að koma þessu öllu saman, smáatriðin í lokin, þið skiljið.

Þar sem ég á semsagt að heita voða upptekin við að ljúka ritgerðinni minni hef ég ákveðið að skrifa hér og nú mitt síðasta Durham blogg, núna rétt um kl 01.00 að staðartíma, áður en ég held áfram að skrifa heillandi kafla um innflytjendalög á Íslandi. Ég skrifa alltaf ágætlega um nætur en samt - spurning hversu heillandi hægt er að gera sum málefni. Þessi bloggfærsla er jafnframt #200, og þykir mér ekki verra að enda á sætri tölu.

Ég er byrjuð að blogga pínu á sameiginlegt blogg okkar Nicks og Steve, þó sá síðarnefndi skrifi harla lítið og dettur líklega bráðum út af þeirri síðu. Þetta blogg heitir A Tale of Two Cities, af því við erum á leið til Edinborgar og Steve er í London, sko, og hana má finna hér. Þar skrifa ég á ensku.

Ég mun eflaust, af því mér finnst merkilega gamana að blogga, opna aðra síðu, sem mig langar að hafa bara á íslensku því hitt er doldið skrítið, þó ég sé að vísu orðin þessu vön eftir tæpt ár af tvítyngdu bloggi. Sú næsta verður skrifuð í Edinborg og því vil ég ekki blanda Durham Doðrantinum í málið og loka honum því með þessari færslu. Hann hefur þjónað mér vel. Það er góð tilfinning að ljúka kafla í lífi sínu svona bókstaflega, með því að hætta að bæta við köflum í þá tilteknu "bók", þið skiljið.

Þakka þeim sem lásu - læt vita hvert ég flyt mig þegar þar að kemur ... þannig að þetta er í raun næstsíðasta en ekki síðasta bloggfærsla mín hér:)

Knús, S:)


This will be my last, or second to last, blog entry on my Durham blog, as I am moving to Edinburgh. I have another blog with Nick and Steve, A Tale of Two Cities, where I write in English, and hope to start my Icelandic one ... why do I bother writing that in English? You don't care as you can't read it! It may in the future contain nice pictures and graphics, though ... :) Anyhoo, see ya, and thanks for reading:)

2 Comments:

Anonymous tintin said...

til hamingju með íbúð og bloggslut og auðvitað allt hitt:)

11:41 PM  
Anonymous Anonymous said...

en bittersweet,
ég fylgist með hinni síðunni
knús
Anja,

12:28 PM  

Post a Comment

<< Home