fljúgandi feður langleggjaðir

daddy long legs útleggst víst á íslensku hrossafluga en ég kaus í gær að kalla svoleiðis kvikindi sem gisti hjá mér, milli þess sem það panikkaði og flaug til skiptis í átt að ljósinu og mér, langleggja feður. vonandi lifir fólk þennan rugling af:)
annars er ein tegund köngullóa, nöfnur ofangreindrar fljúgandi kvikindis, víst líka til, svo ég haldi mig við pödduþema síðustu daga, og þær ku vera einhverjar þær eitruðustu í heimi. þykist viss um að hafa séð þær margar hér:/ maður mætti halda að ég væri í ástralíu eða borneó, svo gróskumikil er pödduflóran hér í uk miðað við ísland. í oz hefði ég samt gert fyrirfram ráð fyrir að hitta fyrir öll þessi skordýr. kemur mér verulega, og ekkert endilega skemmtilega, á óvart, en læt mig sosum hafa það ... enda finn ég í þessu málefni (?) mikla blogginspírasjón.
og hér með lýkur bloggfærslu #193 :)


0 Comments:
Post a Comment
<< Home