Wednesday, September 14, 2005

edinborgarleiðangur 2

Jæja, þá er ég komin aftur.

Við skoðuðum íbúðir í allan gærdag og fengum svo óvænt að gista hjá Simon, pabbi hans og mamma eiga stórt hús (5 svefnherb!) og það kom sér voða vel þar sem við gátum því kíkt á leigumiðlun í morgun sem kunni að meta að sjá okkur frekar en að tala bara við okkur í síma. Nú, og ef allt gengur eins vel og mér finnst að það ætti að ganga erum við búin að finna íbúð í miðbæ Edinborgar:) Ekki alveg frágengið, fyrst þarf að fá voða mörg meðmæli og svoleiðis, unnum í því í dag, og svo er doldið geðþótta mál líka hvort eigandinn treysti atvinnulausum mastersútskriftarnemum! Annars nenni ég ekki að skrifa um þetta núna þó mig hafi áðan langað að skrifa um leitina í gær, því við fórum um alla borg í hífandi roki, erfitt að komst um borgina bílandi því hún er ein einstefna, en þar sem ég nenni ekki að skrifa ætla ég bara að sleppa því og fara að læra! Nick fór út með vinum sínum, til Newcastle, og mig langaði auðvitað með því þetta er svona loka-eitthvað, eftir þetta dreifist mannskapurinn um allan heim, en ég er voða dugleg bara heima að ... háma í mig sælgæti eins og er, en ætla svo að fara að skrifa:) Þarf að skila einhverju til Rodneys áður en ég fer til Edinborgar, en ég flyt þangað áður en ég á að skila 30. sept, og verð því að ljúka ritgerðinni þarna uppfrá. Verð væntanlega ekki með nettengingu fyrr en eftir tvær-þrjár vikur eftir að við flytjum ... nú vona ég bara að ég fái þessa íbúð.

Skrifaði smá hérna í gær, í gegnum símann minn með sms-i:) Þetta er sameiginlegt blogg okkar Nicks og Steve, við í Edinborg bráðum, Steve í London (two cities ... ). Þarna er Nick fyrir framan íbúðina sem við erum að vonast til að fá, og já, þetta er útsýnið:/ Betra ofan af þriðju hæð, en samt ekki slæmt að hafa smá kastala við útidyrnar!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home