Tuesday, September 13, 2005

edinborgarleiðangur 1

á morgun eldsnemma (kl 7) - eða reyndar í dag eftir nokkra klukktíma - förum við nick til edinborgar. hann er búinn að redda "viewings" á 5 íbúðum, þám hjá leigumiðlun sem simon vinur hans og bissnesspartner vinnur á. núna er víst fátt um fína drætti á leigumarkaðnum þannig að ég bið ykkur að krossa fingur fyrir okkur. annars getið þið hvergi gist, eða amk ekki á kósí máta, þegar þið flykkjist í heimsóknir:)

þetta verður bara dagsferð, við höldum rakleiðis heim eftir að hafa skoðað allt sem við getum skoðað svo ég geti haldið áfram að læra. æ æ æ.

annars keypti nick sér einhverja spes-útgáfu af sigurrósar disknum nýja. fær 8 stjörnur af 10 hjá nme. meira að segja mér finnst hann fínn. fyndið að kynnast breta, með plagat (sem steve átti fyrst) af björk til að hylja göt á veggjum, svona miklum aðdáanda íslenskrar tónlistar, sem reyndar all margir bretar virðast vera, og vera sjálf ekkert ofurspennt, aðallega vegna þess einmitt hvað fólk er spennt, ef þið skiljið. slekkur doldið á mér. en núna hlusta ég voða gáfuð og einbeitt á svip á sigurrós meðan fólk sem kann ekki íslensku starir á mig og bíður í ofvæni eftir að ég snari textum yfir á ensku. eins og völva. nei, bara þýðandi:) eins og það breyti einhverju, haha, þetta snýst allt um sándið ... segi ég því textarnir eru mér enn frekar óskiljanlegir. er það bara ég eða á að vera svona erfitt að skilja þá? eitthvað nýtt mál, hopelandic, er það ekki?, en ég er ekkert að útskýra það frekar fyrir "aðdáendum" mínum. ég fæ mikla athygli út á þetta, og held henni meðan ég þýði fallega:)

en sumsé, poj-poj fyrir morgundaginn ok? verð að búa pent eftir þetta ár á elliheimili meðal úrvalspaddna og allraþjóðakvekinda. samt, hvað er maður að kvarta ... er ekki sama hvar maður býr, ef manni bara líður vel?

jú:)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home